- Forsíða\
- Flamenca Village
Flamenca Village - Nútímalegt og íburðarmikið
Upphitaðar sundlaugar
Þar sem hægt er að synda allt árið er Flamenca Village frábær kostur einnig utan háannatíma (október - mars).
Í Flamenca Village eru nokkrar sundlaugar fyrir fullorðna, barnalaugar og heitir pottar. Þeim fylgja sólstólar og sólhlífar, með grasflöt rétt hjá.
Stóra sundlaugin og heiti potturinn við innganginn eru upphituð allt árið.
Sundlaugarbar
Í Flamenca Village er sérstakur bar. Á daginn er hægt að kaupa þar ýmsa drykki.
Barinn er staðsettur í miðri aðalsundlauginni og þangað er gengið eftir göngubrú. Þar eru borð og stólar.
Ef þig langar að njóta bjórs í sundlauginni geturðu notað barborðið sem er niðurgrafið í laugina. Skemmtilegt smáatriði sem vert er að prófa.
Líkamsrækt
Líkamsræktarstöðin er staðsett í miðri fallegri tjörn, með glæsilegum fossi yfir þakinu. Þar eru ýmis æfingatæki og stór og góður búningsklefi.
Íburðarmikið
Flamenca Village geislar af lúxus og gæðum. Um allt svæðið eru fallegir stígar, lýsing, gosbrunnar og fleira.













